Jæja, það hefur aldeilis breyst umhverfið síðan ég var að blogga hér um árið, þegar ég var í námi hjá Salvöru og hún sá um að við kynntumst og prófuðum ýmsar nýjungar á Netinu.
Skrifaði S�lveig kl. 7:22 PM
Áfram með lærdóminn
Nú er langt um liðið síðan ég skrifaði í vefdagbókina. Nokkrum áföngum er lokið, Fjarnám og kennsla og Margmiðlun og hugbúnaðarfræði, og nýir að hefja göngu sína. Ekki er til setunnar boðið heldur verður að láta hendur standa fram úr ermum og takast á við ný verkefni af fullum krafti, ef það er einhver eftir að loknum miklum önnum í sumar og nú í haust.
En ekki dugar annað en að vera jákvæður og léttur í lund og vera bjartsýnn á framhaldið.
Skrifaði S�lveig kl. 2:40 PM
Lærdómssumarið mikla
Nú fer senn að sjást fyrir endann á áfanganum hjá Stefáni Jökulssyni. Aðeins er eftir eitt verkefni og ein stutt ritgerð. Það er ótrúlegt hvað það getur teygst á þessari vinnul. Hjá Láru er aðeins eftir ritgerð en hún þarf reyndar að vera nokkuð löng, eða 10-15 blaðsíður og þá er sá áfangi frá. Þetta kemur allt saman.
Skrifaði S�lveig kl. 10:11 AM
Sól og sumar!
Mikið skelfing er nú veðrið gott, kannski ég taki bara svona sérstaklega eftir því af því ég þarf að vera að læra svo mikið þessa dagana. Það truflar mig svo sem ekkert sérstaklega nema hvað að ég er að reyna að læra fyrir Íslenskt mál að fornu, mjög fornu, og það er ekki mjög skemmtilegt þegar allt þarf að lærast utan að, mjög forn kennsluaðferð og allt mjög fornt við það. Ég reyni samt að forðast að verða mjög forn við þennan lestur heldur setja allt í skammtímaminnið og þar þarf það að endast fram undir miðjan ágúst. Þá má það leka út og gefa rúm fyrir nýjan lærdóm.
Skrifaði S�lveig kl. 4:31 PM
Hugbúnaður og margmiðlunarefni
Drottinn minn dýri. Nú er ég búin að eyða tæpum tveimur dögum í að lesa og reyna að skilja hvað skal gera með verkefni 5 - stafrænar frásagnaraðferðir í áfanganum hjá Stefáni Jökulssyni. Þetta var tyrfið lesefni og þurfti ég (ásamt Ólöfu) að verða mér út um aðstoð sérfræðings til að átta mig á hugtökunum. Eftir langa mæðu hafðist þetta og tókst mér að skila verkefninu rétt í þessu. Púff, læt þetta duga í bili.
Skrifaði S�lveig kl. 12:52 PM
Sæl öll í sumrinu
Nú er ég tekin til við bloggskriftir á ný og ætla að reyna að halda þeim við í sumar og næsta vetur.
Ég hef stundað sumaráfangana Hugbúnaður og margmiðlunarefni hjá Stefáni Jökulssyni og Fjarnám og kennsla hjá Láru Stefánsdóttur. Eins og þið sjáið þá hef ég haft nóg að gera í sumrinu og þannig mun það verða áfram fram í ágúst. En þá er líka mikið frá. Þar sem við Ólöf erum að reyna að ljúka við 30 einingar í haust þá verðum við einnig að ljúka við lokaverkefni upp á 2.5 einingar. Þetta hefur verið í góðum gír og allt undir „kontról“. Vonum að svo verði áfram.
Þrátt fyrir þetta allt saman þá hef ég nú komist með eiginmanninum í ferðir út á landsbyggðina og við haft það verulega gott. Vona að allir hafi það gott og heyri vonandi frá einhverjum samnemendum.
Sumarkveðjur
Skrifaði S�lveig kl. 10:22 AM
Sumarvinnan :-)
Nú er þessari helgi senn að ljúka og hef ég þurft að nýta hana ansi hreint vel til lærdóms og lesturs og ná að koma frá verkefnum vikunnar. Gengur það nú bara þokkalega og sýnist mér að þetta verði lestrarsumarið mikla. Það er nú svo sem í lagi þegar lestrarefnið er með ágætum og samnemendur í áföngunum við sama heygarðshornið. Vonandi eru nú ekki allir hættir að blogga, kannski bara í sumarfríi.
Skrifaði S�lveig kl. 1:02 PM